DuuuduuuuRuuuuDuuuuuDuuuuuduuuuuuduuuuuuu!

Ég á mér nýjan elskhuga, ég er búin að kúra með honum meiri hluta dagsins, strjúka honum og tala við hann. Hann er hlýr, aldrei með vesen og gerir allt sem hann getur til að gera mig hamingjusama, til að uppfylla væntingar mínar. Hann er búinn að reynast mér óskaplega góður félagi í dag, þar sem við höfum haldið okkur að mesti uppí rúmi - undir teppi.

Ég náði nefnilega að vakna veik í morgun. Og áður en þið farið að skamma mig fyrir að sýkingin hafi tekið sig upp... þá er best að koma því á framfæri að þetta er alveg ný og spennandi pest. Jebb, vaknaði með heljarinnar hálsbólgu og eyrnaverk. Hvar ég fann þetta á miðju sumri veit ég ekki, en ég ákvað samkvæmt góðum ráðum að halda mig að mestu í rúminu, slaka á, með elskhuganum. Hann heitir Makki og er tölva... um helgina hefur hann skemmt mér með internetinu, tónlist en umfram allt Indiana Jones! Hér ríkir nefnilega Indiana Jones æði!

"DuuuduuuuRuuuuDuuuuuDuuuuuduuuuuuduuuuuuu! DuuuuuduuuuuuRuuuuuuDuuuuuuDuuuuduuuRuuuuduuuuDuuuu! DuuuuduuuuRuuuuDuuuuDuuuuDuuuuuRuuuuuDuuuduuuRuuuduuuDuuuuuRuuuuDuuuu...."

Um miðnættið í gær sátum við ég, prinsinn og heimalingurinn í hnappi í sófanum og horfðum á brot úr fyrstu Indiana Jones myndinni og sungum öll með Indiana-laginu. Hástöfum. Skrækt og falskt. Heimasætan sem var nýkomin heim og sat í stól, leit á okkur, brosti og tók svo undir. Ég segi það... það þarf ekki meira en svona stund til að finna hamingjuna, Umkringd besta fólkinu, öll saman... Allir saman svo: "DuuuuduuuuRuuuuuDuuuuu...." Skítt með það þó við ættum öll að vera farin að sofa. Það var svo gaman að það var ekki hægt að fara að sofa... Í staðinn sváfum við út og nutum þess... ja, svona eins og hægt er að njóta þess að sofa þegar maður getur ekki kyngt munnvatninu sínu og eyrun eru við það að springa. En á móti kemur að það er pottþétt afsökun til að kúra það sem er eftir dagsins (þegar búið er að versla inn fyrir vikuna og sinna búi kattadómarans) uppí rúmi, gónandi á Indiana Jones.....

DuuuduuuuRuuuuDuuuuuDuuuuuduuuuuuduuuuuuu!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rebbý

Indiana Jones þemalagið klikkar ekki - tökum það saman síðar

Rebbý, 22.6.2008 kl. 21:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vilma sjálf

Höfundur

Vilma Kristín
Vilma Kristín
The Worrying kind
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband